Fara í meginefni
Melda

Einfaldaðu
viðburðinnbrúðkaupiðárshátíðinaafmæliðfermingunaráðstefnuna
með Melda

Það þarf ekki að vera flókið að halda viðburð.

Hvernig virkar Melda

Vertu klár í að taka á móti meldingum

Fjögur einföld skref til að halda utan um viðburðinn og gefa hverjum gest persónulega upplifun

1

Búðu til viðburð

Veldu dagsetningu og bættu við upplýsingum og myndum. Meldingarsíðan er klár á augnabliki.

3 mín uppsetning
2

Bjóddu gestum

Sendu hlekk á gesti, bjóddu úr tengiliðum, eða bættu við gestalistanum úr Excel. Þú velur það sem hentar þér best.

Flytja inn eða deila
3

Safnaðu meldingum

Gestir svara með mætingu, bæta við +1 eða svara mataróskum eða spurningum.

Rauntímauppfærslur
4

Gestir fá eigin síðu

Sérhver gestur fær persónulega síðu með viðburðarupplýsingum, póstum, spjalli við gestgjafa, óskalista og fleira.

Spjall, gjafir og fleira
Eiginleikar

Allt sem þú þarft

Öflug verkfæri til að skipuleggja viðburðinn á þinn hátt

Sjálfvirk mætingarskráning

Gestir melda sig sjálfir á einföldum og fallegum síðum, þú notar meiri tíma í undirbúninginn og gerir veisluna enn skemmtilegri.

Markaðstorg - allt á einum stað

Fáðu alvöru yfirsýn yfir það sem þú þarft að græja. Allt sem þarf fyrir viðburðinn á einum stað.

QR miðaskönnun

Einstakir QR miðar fyrir hvern gest með farsímaskannara, wallet-pössum og staðfestingu við dyr.

Hámarksfjöldi og biðlisti

Stilltu hámarksfjölda gesta sem rúmast í salnum. Umframgestir fara á biðlista og þú færir þá inn einn í einu þegar pláss losnar.

Lifandi dagskrá fyrir gesti

Deildu nákvæmri tímalínu með gestum. Lifandi „Núna“-merki og mjúk framvinduslá sýna hvar dagurinn er staddur — svo enginn missir af því sem er að gerast.

Skilaboðaskjóða fyrir hvern viðburð

Haltu uppi spennunni fyrir partýið og svaraðu spurningum frá gestum á einum stað.

Verkefnalisti

Skipuleggðu alla undirbúninginn með verkefnalista. Tilbúin sniðmát fyrir brúðkaup og fermingar, forgangsröðun, undirverkefni og úthlutun á meðstjórnendur.

Gjafalistar

Auðveldaðu gestunum lífið og gefðu þeim hugmyndir af gjöfum. Gestir geta skoðað og tekið frá gjafir. Gestgjafar sjá ekki hvort eða hver tók frá hvaða gjöf.

Sætaskipan

Raðaðu gestum til borðs, prentaðu borðaskipan og borðaspjöld. Leyfðu gestum að velja sér borð sjálfir (valkvætt).

Drykkjamiðar og inneignir

Gefðu gestum QR drykkjamiða, innifalið magn eða flex inneignir. Aldursstaðfesting með kennitölu og virkar án nets.

Spurningalistar

Spyrðu gesti um allt sem þig langar að vita - aldur, rétt af matseðli, flugnúmer eða hvað sem er. Svörin birtast snyrtilega í gestalistanum.

Markaðstorg

Markaðstorg Melda

Veislusalir, tónlistarmenn, ljósmyndarar, skemmtikraftar, veisluþjónustur og fleira!

Hleð korti...
Algengar spurningar

Ertu með spurningar?

Hér eru svör við algengum spurningum um Melda

Komdu í veg fyrir höfuðverkinn!

Það er ekki einfalt að halda utan um meldingar í tölvupósti eða á Facebook viðburðum. Láttu Melda sjá um það fyrir þig.

Ókeypis
Auðvelt í notkun
Íslensk þjónusta